Yfirlit búvélaprófana árið 1984
STRANGKO – heyskeri
Skýrsla nr. 530
Framleiðandi: P. Strange - Hansen A/S, Danmörku. Innflytjandi: Glóbus h.f. Reykjavík.
YFIRLIT
Strangko heyskerinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins 1982-1983. Strangko heyskerinn hentar vel til heyskurðar bæði á votheyi og þurrheyi. Unnt er að fá hann bæði fyrir ein- og þriggja fasa rafmagn. Skurðhraðinn er að meðaltali 5,7 m/mín og skurðdýptin um 30 cm. Rafmagnsnotkun í vinnslu með einfasa mótor er 4-8 amper. Vinnustaða við notkun á tækinu er fremur góð og auðvelt er að stjórna því, þar sem það færist áfram af eigin afli. Heyskurðurinn verður yfirleitt hreinn, en ekki er hægt að skera alveg út að veggjum eða öðrum hindrunum. Ekki virðist sérstök slysahætta bundin við notkun tækisins ef notkunarreglum er fylgt. Vinna við viðhald á tækinu er lítil og einkum fólgin í því að hvetja hnífinn. Engar óeðlilegar bilanir eða slit komu fram á reynslutímanum. Mótorþétti er illa fyrir komið og dældaðist hann því nokkuð.
KVERNELAND - rafmagnstalía
Skýrsla nr. 531
Gerð: TKS 22100. Framleiðandi: T. Kvernelands & Sönner A/S. Innflytjandi: Glóbus h.f. Reykjavík.
YFIRLIT
Kvernelands rafmagnstalían var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og notuð við losun og flutning á um 2000 m3 af heyi.
Talían er með einfasa mótor og ætluð til losunar úr votheysgeymslum einkum turnum en einnig má nota hana til þurrheyslosunar. Lyftigeta talíunnar er um 1500 kp og lyftihraði um 9 m/mín. Talían var reynd með rafdrifnum brautarvagni, sem breyta má fyrir ólíkar stærðir af I-bitum. Við fyrirkomulag brauta verður að gera ráð fyrir allt að 2 tonna álagi. Til að komast um með heyhlass í hlöðunni þarf rými sem svarar um 2,5-3,0 m á hæð (að brautum) og um 1,5-2,3 m á breidd. Við losun á votheyi er til bóta að stinga fyrir með heyskera einkum ef lítið heymagn er gefið daglega. Talían þarf allt að 35 A straum í "starti" en við hámarksálag um 14,5 A. Hún er búin vartengslum, sem gefa eftir við 1400-1500 kp átak. Með algengri gerð af gripkló verður hlassþyngdin að jafnaði um 400 kg en getur mest orðið um 700 kg af votheyi. Afköst við losun úr heystæðu eru á bilinu 1,1-1,5 mín á 100 kg heys.
Talían reyndist í heild traustbyggð og örugg í notkun. Á reynslutímanum bilaði "afriðill" í hemlabúnaði talíunnar en annarra bilana varð ekki vart.
PZ – sláttuþyrla
Skýrsla nr. 533
Gerð: PZ CM 185 H. Framleiðandi: P.J. Zweegers en Zonen, B.V. Geldrop, Hollandi. Innflytjandi: S.Í.S búvéladeild, Reykjavík.
YFIRLIT
Sláttuþyrlan PZ CM 185 H ásamt með heyknosara var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1983 og notuð alls um 100 klst.
Sláttuþyrlan reyndist slá jafnt og vel. Stubblengd í sláttufari mældist innan markanna 20-50 mm í nær 100% tilfella við ökuhraðann 7-9 km/klst. Á illa sléttu landi voru nokkur brögð að því, að sláttuhnífar særðu grasrót, en við allar algengar aðstæður fylgdi vélin vel ójöfnum landsins. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 1,85 m og mældust afköst að jafnaði 1,1-1,4 ha/klst við venjulegar aðstæður og ökuhraðann 8-11 km/klst. Heyknosari fylgdi vélinni og er auðvelt að tengja hann og aftengja. Notkun hans rífur og tætir heyið nokkuð í sundur um leið og slegið er, en það flýtir þurrkun heysins nokkuð. Ætla verður 30-45 kW (40-60 hö) traktor fyrir sláttuþyrluna, en aflþörfin er verulega háð því, hvort knosarinn er notaður eða ekki. Vélin er lipur í notkun. Í flutningsstöðu er burðararmi sláttuskífanna lyft í lóðrétta stöðu með vökvaþrýstingi frá traktor. Ekki kom fram óeðlilegt slit í sláttuþyrlunni á reynslutímanum.
FAHR - sláttuþyrla
Skýrsla nr. 534
Gerð: Fahr SM-40. Framleiðandi: Klöckner-Humboldt-Deutz AG, Zweigniederlassung Fahr, Gottmadingen, Þýskalandi. Innflytjandi: Þór h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Sláttuþyrlan Fahr SM-40 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1983 og notuð alls um 70 klst.
Sláttuþyrlan reyndist slá gras og grænfóður jafnt og vel. Breidd sláttuskára er allt að 2,1 m. Stubblengd í sláttufari mældist að meðaltali um 50 mm á sléttu, vel sprottnu túni. Um 60% mælinga voru innan markanna 20-50 mm, en í 40% tilfella var stubblengdin yfir 50 mm. Sláttuþyrlan reyndist fylgja tiltölulega vel ójöfnum lands og hún er lipur í notkun. Ökuhraði við slátt var algengur 8-11 km/klst og afköst 1,2-1,6 ha/klst. Gera verður ráð fyrir 30-36 kW (40-48 hö) dráttarvél fyrir sláttuþyrluna. Nokkur brögð voru að því, að sláttuhnífar bognuðu og 6 hnífar brotnuðu á reynslutímanum. Ekki kom fram óeðlilegt slit í sláttuþyrlunni á reynslutímanum.
STOLL - heyþyrla
Skýrsla nr. 535
Gerð: Stoll Z 400. Framleiðandi: Wilhelm Stoll Maschinenfabrik GmbH, 3325 Lengede/Broistedt, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélaborg h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Heyþyrlan Stoll Z 400 var reynd af Bútækndeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1983 og notuð alls um 70 klst.
Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist góð og hún fylgir ójöfnum landsins vel. Vinnslubreidd hennar er um 3,9 m og afköstin við heysnúning voru að jafnaði á bilinu 2,3-3,0 ha/klst. Heyþyrluna má stilla þannig, að hún kasti heyinu nokkuð til hliðar, t.d. á skurðbökkum. Vélin getur dreift úr heymúgum, og varð dreifingin jöfn og góð væru þeir ekki mjög þykkir. Ökuhraði við dreifingu reyndist hæfilegur 5-8 km/klst. Vélin er óstöðug í rásinni, þegar henni er ekið greitt í flutningsstöðu eftir ójöfnum vegum. Engir teljandi annmarkar aðrir komu fram við notkun vélarinnar, og hún reyndist í heild traustbyggð.
STOLL - stjörnumúgavél
Skýrsla nr. 536
Gerð: Stoll R 281. Framleiðandi: Wilhelm Stoll Maschinenfabrik GmbH, 3325 Lengede/Broistedt, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélaborg, Reykjavík.
YFIRLIT
Stjörnumúgavélin Stoll R 281 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1983 og notuð alls um 80 klst.
Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifa í rakstrarfari mældist að jafnaði á bilinu 0,5-1,0 hb/ha við eðlilegan ökuhraða. Vélin reyndist fylgja allvel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá skurðbökkum og girðingum, en traktor treður heyflekkinn. Mótvindur rýrir nokkuð rakstrargæðin. Ekki er unnt með góðu móti að raka heyi í mjög þykka múga með vélinni. Breidd rakstrarfars vélarinnar er allt að 2,3 m. Ökuhraði við múgun reyndist hæfilegur 8-10 km/klst, og voru afköst að jafnaði 1,6-2,0 ha/klst. Múgavélin er auðveld og lipur í tengingu og notkun. Nokkuð varð þess vart, að múgar yrðu ójafnir fyrir það, að hey kastaðist undir múgspjaldið, einkum ef um þunna múga var að ræða. Engar bilanir urðu í múgavélinni á reynslutímanum. |