Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa

Yfirlit búvélaprófana árið 1983

MALETTI – jarðtætari

Skýrsla nr. 523

Gerð: XBCV 3 200 LR. Framleiðandi: Maletti Macchine Agricule, Ítalía. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Tindatætarinn XBCV3 var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins 1982 og notaður alls um 120 klst.

Vinnslubreidd tætarans er 190 cm. Jarðtætarinn hefur tinda á vinnsluás í stað hnífa svo sem algengara er. Tætarinn er ætlaður til að vinna land undir sáningu, en hentar ekki til þess að vinna óbrotið eða gróið land. Plógstrengi vann tætarinn fullnægjandi vel undir sáningu og til nægilegrar dýptar í 1-2 umferðum. Í fremur léttum jarðvegi mældist vinnsludýptin 16-20 cm eftir eina yfirferð. Grænfóðurakra á mýrlendi vann tætarinn til 18 cm dýptar eftir tvær yfirferðir. Ökurhraði við jarðtætingu var að jafnaði 3-4 km/klst og var notaður um 70 hestafla traktor til dráttar. Afköst voru um 0,5 ha/klst við algeng skilyrði. Á reynslutímanum brotnuðu alls 6 tindar í tætaranum og allmargir skrúfboltar í tindafestingum brotnuðu, en meiri háttar bilanir urðu ekki.


KEMPER – haugsuga

Skýrsla nr. 524

Gerð: Kemper V 25. Framleiðandi: Maschinenfabrik Kemper GmbH., 4424 Stadtlohn, Þýskalandi. Innflytjandi: S.Í.S. véladeild, Reykjavík.

 

YFIRLIT

Haugsugan Kemper V 25 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins árið 1982 og notuð alls um 230 klst.

Haugsugan reyndist hæf til þess að soga upp fljótandi búfjáráburð (vatnsblandaðan) úr þró eða haughúsi, væri þurrefnisinnihald innan við 12% Afköst við hleðslu eru m.a. háð þykkt áburðarins. Væri hann vatnsþunnur mældust þau 1750 l/mín (soghæð 1 m), en 600-800 l/mín, ef um þykkfljótandi áburð var að ræða (um 11% þurrefni). Tankur haugsugunnar tekur allt að 2500 l. Dreifing reyndist jöfn og góð, ef um þunna mykju var að ræða og vinnslubreiddin 6-8 m. Væri mykjan þykkfljótandi var vinnslubreiddin mun minni og á yfirþrýstingur í tank þar hlut að máli, en hann takmarkast við 0,5 kg/cm2. Losun haugsugunnar tók að jafnaði 2-3 mín.

Haugsugan reyndist auðveld í notkun og meiri háttar bilanir urðu ekki á reynslutímanum.


JÖLA – áburðardreifari

Skýrsla nr. 525

Gerð: Jöla F 60. Framleiðandi: Maskinfabrik Jöla, 8740 Brændstrup, Danmörku. Innflytjandi: Boði s.f., Hafnarfirði.

 

YFIRLIT

Áburðardreifarinn Jöla F 60 var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1982 og notaður alls um 60 klst.

Áburðardreifarinn er þyrildreifari og rúmar 610 l af áburði (um 600 kg). Við dreifingu á grófkorna áburði (Græði 4) varð jafnleiki dreifingar viðunandi góður væri skörun dreififerða hæfileg, sem fékkst við 12-14 m vinnslubreidd. Við dreifingu fínkorna áburðar er vinnslubreiddin minni og áhrifa af vindi gætir meira en við notkun grófkorna áburðar. Stilla má dreifimagn af viðhlítandi nákvæmni. Harðir kekkir í áburðinum geta sest í útrennslisop dreifarans og truflað dreifingu, en að því undanskildu var rennsli áburðarins um opin jafnt og þétt. Auðvelt er að þvo dreifarann og hreinsa. Í lok reynslutímans gætti nokkurrar ryðmyndunar í dreifibúnaði, en meiri háttar bilanir urðu engar.


FELLA – sláttuþyrla

Skýrsla nr. 526

Gerð: Fella KM 165 KC. Framleiðandi: Fella-Werke GmbH., 8501 Feucht bei Nürnberg, Þýskalandi. Innflytjandi: Glóbus h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Sláttuþyrlan Fella KM 165 KC með sambyggðum heyknosara var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1982 og notuð alls um 110 klst.

Sláttuþyrlan reyndist slá jafnt og vel. Stubblengd í sláttufari mældist á sléttu landi innan markanna 20-50 mm að meðaltali í 93% tilvika. Á illa sléttu landi voru nokkur brögð að því, að sláttuhnífar særðu grasrót. Vinnslubreidd vélarinnar er 1,65 m og mældust afköst að jafnaði 1,0-1,2 ha/klst við algengar aðstæður og ökuhraðann 8-11 km/klst. Heyknosari er sambyggður sláttuþyrlunni, en hann mer og tætir heyið nokkuð í sundur um leið og slegið er. Notkun knosarans flýtir nokkuð þurrkun heysins í þurrviðratíð, einkum á fyrri hluta þurrkunartímans. Auðvelt er að taka knosarann frá sláttuþyrlunni. Ætla verður 35-45 kW (45-60 hö) traktor fyrir sláttuþyrluna. Á reynslutímanum kom ekki fram óeðlilegt slit á sláttuþyrlunni.


KUHN – heyþyrla

Skýrsla nr. 527

Gerð: Kuhn GRS 25. Framleiðandi: Kuhn SA Constructeurs, 67700 Saverne, Frakklandi. Innflytjandi: S.Í.S. véladeild, Reykjavík.

 

YFIRLIT

Múga- og snúningsvélin Kuhn GRS 25 var reynd af Bútækndeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1982 og notuð alls um 170 klst.

Vélin getur þjónað þrennskonar hlutverki: Heysnúningi, múgun og dreifingu heymúga. Hæfni vélarinnar til þess að snúa heyi reyndist viðunandi góð og hún fylgir ójöfnum landsins fremur vel. Við heymúgun reyndist vélin raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifar í rakstrarfari var jafnan á bilinu 1,0-1,4 hb/ha, væri um þurrkað hey að ræða. Sé um smágert hey að ræða má gera ráð fyrir nokkru meiri dreif, svo og í mótvindi. Ekki er unnt með góðu móti að raka heyi í mjög þykka múga með vélinni. Hæfni hennar til dreifingar heymúga reyndist ekki eins góð og gerist almennt með 4ra stjörnu heyþyrlum, þar eð þykkt heyflekksins verður mun ójafnari. Vinnslubreidd vélarinnar reyndist vera um 2,8 m. Hæfilegur ökuhraði var jafnan á bilinu 7-11 km/klst, og afköst 1,7-2,2 ha/klst. Vélin reyndist lipur í notkun, en stilling vélarinnar úr rakstrarstöðu í snúningsstöðu og öfugt reyndist fremur örðug fyrir einn mann, en að öðru leyti er vélin lipur í notkun. Bilanir urðu ekki á reynslutímanum.


CLAAS – heybindivél

Skýrsla nr. 528

Gerð: Claas Markant 52. Framleiðandi: Claas OHG, 4834 Harsewinkel, Þýskalandi. Innflytjandi: Dráttarvélar h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Heybindivélin Claas Markant 52 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1982. Alls voru bundnir nær 20 þús. baggar með vélinni.

Heybindivélin tók heyið vel upp úr múgum og skildi eftir litla dreif. Hún batt heyið að jafnaði í vel mótaða bagga, 0,46 m breiða og 0,36 m þykka. Lengd þeirra er stillanleg á bilinu 0,4-1,1 m. Nokkur breytileiki í lengd bagga kom fram við bindingu, ef múgi var misþykkur. Þéttleiki bagga er stillanlegur innan víðra marka. Afköst við heybindingu úr múgum var að jafnaði á bilinu 7-11 tonn/klst, en við bestu aðstæður um 13 tonn /klst. Vélin vann örugglega og mishnýting var fátíð. Á reynslutímanum kom brestur í tannhjól, sem tengist ytri gaffli, og tindur í innra gaffli brotnaði. Aðrar bilanir komu ekki fram.


CLAAS - heyhleðsluvagn

Skýrsla nr. 529

Gerð: Claas K30 - fjölhnífavagn. Framleiðandi: Claas OHB, 4834 Harsewinkel 1, Þýskalandi: Innflytjandi: Dráttarvélar h.f.

 

YFIRLIT

Heyhleðsluvagninn Claas K30 var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1982. Á reynslutímanum var hann notaður alls um 120 klst.

Vagninn er ætlaður til hleðslu og flutnings á heyi og grænfóðri. Sópvindan vísar fram á við, og hefur 1,5 m vinnslusvið. Hæð hennar er stjórnað með vökvabúnaði traktors. Hleðslubúnaður vagnsins vann vel. Hleðslutími fyrir þurrhey var að jafnaði um 4,0 mín/t brúttó, en um 3,2 mín/t séu allar frátafir reiknaðar frá (nettó). Samsvarandi tölur fyrir vothey eru 2,5 mín/t br. og 2,0 mín/t nettó. Hafa má allt að 23 hnífa í tveim röðum í hleðslutokk vagnsins. Hnífabil í hvorri röð er 120 mm og skarast þau til hálfs. Sé öllum hnífunum beitt, verður söxun heysins veruleg, sem hefur gildi við votheysgerð. Losun vagnsins tekur minnst 2,3 mín auk þess sem um 1 mín fer í að opna og loka afturgrind. Ætla verður 40-50 kW traktor fyrir vagninn, eigi að nýta afkastagetu hans til fulls. Vagninn reyndist traustbyggður og bilanir urðu ekki í honum á reynslutímanum.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað