Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa


Reglugerð um prófun búvéla

 

1. gr.


Bútæknisdeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins annast prófun búvéla og verkfæra í þeim í þeim tilgangi, að reyna hæfni og notagildi þeirra við íslenskar aðstæður. Tilhögun á prófun getur verið þrennskonar.
          a)      Prófun einstakra búvéla að beiðni framleiðenda eða umboðsmanns hans.

          b)      Telji Bútæknideild ástæðu til, getur hún haft frumkvæði um prófun einstakra búvéla. Skal þá framleiðanda eða umboðsmanni hans tilkynnt um prófunina.

          c)      Samanburðatilraunir á vélum og verkfærum af hliðstæðri gerð, þegar Bútæknideild telur ástæðu til.

     2. gr.

      Prófun búvéla á vegum Bútæknideildar fer fram að Hvenneyri eða öðrum þeim stað, er deildin ákveður.

      3. gr.

    Beiðni um prófun á landbúnaðartæki skal vera skrifleg og sendast Bútæknideild með góðum fyrirvara. Beiðninni skal fylgja lýsing á gerð og vinnubrögðum tækisins.

      4. gr.

    Samþykki Bútæknideild að taka viðkomandi búvél í prófun, skal umsækjandi sjá um flutning hennar á prófunarstað fyrir þann tíma, er Bútæknideild til tekur. Sé prófun búvélar bundin við vissan árstíma, skal hún send Bútæknideild minnst tveim vikum áður en hann gengur í garð.

    5. gr.

    Eigi skal endurprófa búvél, nema sérstakar ástæður komi til að mati Bútæknideildar.

      6. gr.

    Umsækjandi ber ábyrgð á því, að búvél, sem send er til prófunar, sé að öllu leyti eins að allri gerð og vélar þær af sömu tegund, sem eru á markaðnum.

    Umsækjandi ber einnig ábyrgð á því, að vélin sé rétt samsett og rétt stillt, þegar prófun hefst. Hann skal og láta í té fullnægjandi upplýsingar um notkun og viðhald vélarinnar.


      7. gr.

    Umsækjandi um prófun skal afhenda Bútæknideild endurgjaldslaust vél þá, sem reyna skal, og hefur deildin full umráð yfir henni á meðan prófun sendur yfir. Þá skal hann láta deildinni í té varahluti í vélina, svo sem nauðsyn krefur við prófunina.

    Umsækjandi kostar flutning á vél sinni til og frá prófunarstað.

    Bútæknideild er undanþegin allri ábyrgð og bótaskyldu vegna tjóns, sem prófunarvél kann að verða fyrir við prófunina.


      8. gr.

    Umsækjandi eða umboðsmanni hans er heimilt að vera viðstaddur prófun vélar sinnar. Að  öðru leyti ákveður Bútæknideild í hvert sinn, hverjum skuli vera heimilt að fylgjast með búvélaprófunum.

      9. gr.

    Bútæknideild er skylt að láta umsækjanda í té bráðabyrgðaskýrslur um niðurstöður prófunar eigi síðar en mánuði eftir að henni lýkur.

    Endanleg skýrsla um umbeðna prófun (skv.1.gr.a.) skal birt opinberlega, nema fyrir liggi skrifleg yfirlýsing umsækjanda þess efnis, að hann muni ekki bjóða viðkomandi vél til sölu hér á landi. Taki annar aðili upp verslun með sömu vél, þótt undir öðru merki sé, skal skýrslan birt viðeigandi skýringum.

    Prófunarskýrslu skal senda framleiðanda eða umboðsmanni hans til yfirlestrar og umsagnar, áður en hún er sett í prentun. Skriflegar athugasemdir skulu berast Bútæknideild fyrir tilskilinn tíma.


      10. gr.

    Óheimilt er að nota prófunarskýrslu í auglýsingarskyni, fyrr en endanleg skýrsla Bútæknideildar liggur fyrir. Er þá heimilt að birta skýrsluna orðrétt í heild eða lokaorð hennar. Hins vegar er óheimilt að draga úr skýrslunni einstakar málsgreinar, töflur eða línurit til birtingar, nema skriflegt samþykki Bútæknideildar liggi fyrir.

    Niðurstöður búvélaprófana eiga aðeins við um vélar, sem eru eins og prófunarvélin að allri gerð og byggingu sbr. 6.gr.1.mgr.


    11. gr.  

    Gjald fyrir prófun búvéla greiðist við lok prófunar samkvæmt gjaldskrá, sem  Rannsóknastofnun landbúnaðarins ákveður í samráði við landbúnaðarráðuneytið.

    Reglugerð þessi staðfestist hér með samkvæmt V. kafla laga nr. 64 21.maí 1965 um Rannsóknastofnun landbúnaðarins til þess að öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 33 12. apríl 1962.

       


    Landbúnaðarráðuneytið, 9. janúar 1976.

      Halldór E. Sigurðsson.

Ragnheiður Árnadóttir
               

     

 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004