Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa

Reglubundið viðhald dráttarvéla

Gátlisti og tímasetningar


Í hefðbundnum búrekstri eru dráttarvélar að jafnaði stærsta fjárfestingin hvað varðar einstakar búvélar. Rekstrinum er að sjálfsögðu ætlað að standa undir fjárbindingunni og skila arði. Það gefur því auga leið að til að ná því markmiði er rétt notkun vélanna og reglubundið viðhald afar mikilvægt. Forsenda þess að halda vélunum í skikkanlegu ástandi er að fylgja tilteknum vinnulagi og tileinka sér rétt vinnubrögð.

Hluta af reglubundnu viðhaldi geta menn framkvæmt sjálfir en aðra þætti verður að fá unnið á verkstæði. Reglubundið viðhald getur í megin dráttum litið út eins og fram kemur í eftirfarandi umfjöllun.


1.

Fylgja þarf leiðbeiningabókinni varðandi smurning, eftirlit með olíu, síuskipti og þar fram eftir götunum. Góð vinnuregla er að færa dagbók þar sem fram kemur bæði dagsetning og staða vinnustundamælis þegar aðgerðin er framkvæmd. Góð viðbót er að skrá aðgerðir á verkstæðum, ástæður, tímafjölda og verð. Með því móti fæst gott yfirlit um viðhaldskostnað vélanna.

2.

Gæta þarf þess að ljósabúnaður sé ávallt í lagi og eiga að jafnaði til varaperur og öryggi í rafbúnaðinn. Varasamt getur verið að bæta við auka ljósabúnaði án samráðs við fagmenn þar sem mikill hluti búnaðarins í vélinni er rafstýrður.

3.

Tryggja þarf að hemlabúnaður sé í lagi, speglar heilir og rúður séu hreinar því að oft er það forsenda þess að hægt sé að fylgjast nægilega vel með vinnutækjum. Athugandi er hvort bæta þurfi hlífar yfir hjólbörðum til að draga úr óhreinindum á vélinni.

4.

Forðist allan glannaskap við notkun vélanna. Virðið allar öryggisreglur bæði hvað varðar vélar og mannskap. Það er engin ástæða til að ganga með offorsi til verka.

5.

Fara þarf með varúð þegar um er að ræða þungaflutninga að nægilegur þungi hvíli á hjólum með hemla- og stýrisbúnað.

6.

Athugið að margar dráttarvélar má ekki “draga í gang” vegna þess að þá er ekki olíuþrýstingur á gírkassanum. Einnig er rétt að vekja athygli á að sumar tegundir dráttarvéla má alls ekki draga t.d. á verkstæði af sömu ástæðu.




Bútæknideild Rala 2004-04-23
Grétar Einarsson.
Heimild: Jörn Manniche og Birger Rassmussen, 1997.Traktor og motorlære. Landbrugets Rådgivningscenter, Landbrugsforlaget Danmörku.



Drvelvidh210404.pdf




 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004