|
|
LSB býður óverðtryggð lán fyrstur lífeyrissjóða
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA hefur ákveðið að bjóða sjóðfélögum upp á óverðtryggð lán, fyrstur lífeyrissjóða á landinu. Um er að ræða veðlán og er hámarkslánsfjárhæð tíu milljónir króna með lánstíma til allt að fimm ára.
Með óverðtryggðum skammtímalánum er verið að koma til móts við sjóðfélaga um aukna möguleika til að fjármagna smærri framkvæmdir á styttri lánum en verið hefur.
Vextir lánanna taka mið af vöxtum óverðtryggðra lána sem Seðlabanki Íslands birtir, nú 5,25%, auk álags sem ákveðið er af stjórn sjóðsins, nú þrjú prósentustig. Í nóvember 2011 verða vextir lánanna því 8,25%.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
LSB býður verðtryggð lán með breytilegum og föstum vöxtum
Á stjórnarfundi lífeyrissjóðsins 25. febrúar 2011 var samþykkt að gefa sjóðfélögum kost á verðtryggðum lánum með ákvæðum um fasta vexti en fram til þessa hafa öll verðtryggð lán verið með breytilegum vöxtum.Vextir lána með ákvæðum um fasta vexti verða 5,5% en breytilegir vextir lána sjóðsins eru nú 5,0%.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Vextir sjóðfélagalána
|
|
|