Önnur mál.
Fram kom fyrirspurn frá Sigurgeiri varðandi skerðingarmál öryrkja, hvað væri nákvæmlega verið að gera sem breytti svona miklu hjá þessum hópi núna.
Formaður skýrði frá því að örorkulífeyrir væri orðin svo stór hluti greiðslna úr lífeyrissjóðunum að endurskoða hefði þurft skilyrði fyrir greiðslu hans. Hún gat þess að samkvæmt lögum og samþykktum lífeyrissjóðanna þyrfti öryrki að hafa orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum örorkunnar til þess að eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris frá lífeyrissjóðum. Í tekjukönnunum hingað til hafa greiðslur frá almannatryggingum ekki verið teknar með í útreikninga hjá sjóðunum. Nú er verið hins vegar verið að breyta þessu þannig að tekið sé tillit til þeirra.
Formaður þakkaði gestum fyrir komuna.
Fundi slitið kl. 15:45
|